Styrkja nýsköpun í öryggismálum sjófarenda

Deila:

Samgöngustofa auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna sem miða að auknu öryggi og bættri heilsu sjófarenda. Styrkirnir eru veittir árlega til einstaklinga eða félaga sem koma með nýjar lausnir eða rannsóknarverkefni tengd öryggi skipa, vinnuaðstöðu sjómanna, öryggi farþega eða heilbrigðismálum um borð.

Heildarstyrkir geta numið allt að 2,5 milljónum króna árlega, og öllum er heimilt að senda inn umsókn.

Umsóknum skal skilað á netfangið styrkur@samgongustofa.is, ásamt útfylltu umsóknareyðublaði sem er að finna á vefnum:

Með umsókn skal fylgja ítarleg lýsing á verkefninu ásamt greinargerð um hvernig styrkurinn verði nýttur.

Síðasti skiladagur umsókna er 15. maí 2025.

Deila: