Mikil gullkarfaveiði á Halanum í sumar

Deila:

,,Það hefur gengið mjög vel og það er óvenjulega mikið af karfa á ferðinni á Halanum og reyndar í öllum köntunum á Vestfjarðamiðum. Þetta er reyndar góður karfatími en veiðin er mun betri en ég átti von á,“ segir Heimir Guðbjörnsson, skipstjóri á Helgu Maríu AK, í samtali við heimasíðu HB Granda. Togarinn kom með fullfermi til hafnar í Reykjavík í gærmorgun.

Að sögn Heimis hefur karfaveiðin ekki verið vandamál í sumar en meira þarf að hafa fyrir þorskveiðinni og mest fyrir því að leita að ufsa.

,,Það er reyndar fín þorskveiði dýpra í köntunum en í síðustu tveimur túrum fórum við eftir þorskinum norður og austur í Reykjafjarðarál og á Strandagrunnið. Þar hefur verið mikil og góð þorskveiði í sumar og þar hefur fengist hinn fínasti fiskur eða að jafnaði rúmlega 3,6 kílóa þorskur. Á þessum slóðum hefur einnig verið mjög góð karfaveiði en því miður þá er ufsinn tregari til. Það er alveg hægt að veiða ufsa ef maður hefur tíma til þess,“ segir Heimir en hann segir að tímabundnar breytingar á ísfisktogaraútgerðinni hjá félaginu hafi leitt til þess að veiðiferðir togaranna hafi verið styttar um sólarhring.

,,Því gefst ekki sami tími og áður til að leita að ufsanum. Góðu fréttirnar eru þó þær að ufsinn er farinn að sýna sig aftur fyrir vestan eftir frekar slaka ufsaveiði í sumar“ segir Heimir Guðbjörnsson.
 

 

Deila: