„Ég er ekki í neinni kraftaveiði“

„Ég er mjög ánægður með að við skyldum fá þessa 48 daga. Ég ætla að njóta hvers dags eins og ég get,“ segir trillukarlinn Tryggvi L. Skjaldarson, sem jafnframt er í stjórn Smábátafélags Reykjavíkur. Þegar Ægir hitti Tryggva í Snarfarahöfn, mánudaginn 5. maí, var hann á leið í sinn fyrsta róður, eins og flestir aðrir. Hann ætlar að róa frá Reykjavík í sumar, eins og í fyrra, en fram að því hafði hann verið ýmist á Snæfellsnesi eða Tálknafirði. Hann saknar þess að fara vestur en segir þægilegra fyrir sig að vera nær heimili sínu. Auk þess sé auðveldara að fá aðstoð ef eitthvað bilar, verandi á höfuðborgarsvæðinu.
Þrátt fyrir að vera kominn yfir sjötugt er óhætt að segja að Tryggvi sé uppfullur af nýjum hugmyndum. Handfæraveiðar hafa verið stundaðar óbreyttar í nokkra áratugi. Tryggvi ákvað að breyta því. Hann hefur hannað og fengið einkaleyfi fyrir hönnun á grind sem einfaldar handfæraveiðarnar til muna. Á vefsíðunni mari.is er hægt að sjá myndir og myndbönd og lesa sér til um þennan búnað. Þar segir meðal annars: „MARI handfærabúnaður gengur út á að slóðinn er allur dreginn inn í bátinn af rafmagnsrúllunni, án þess að sjómaðurinn þurfi að koma við hann. Sama á við þegar færi er slakað í sjóinn, mannshöndin kemur ekki við slóðann.“
Sjón er sögu ríkari. Tryggvi segir raunar, í gamansömum tón, að innbyggð leti hafi ýtt honum út í að hanna þennan búnað. Búnaðurinn auðveldar vinnuna um borð til mikilla muna.