GRÓ hlýtur lof í mati GOPA

GRÓ Sjávarútvegsskólinn, sem starfar undir merkjum UNESCO og Háskólinn á Akureyri tekur þátt í, hefur hlotið lof í nýju mati alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækisins GOPA. Í matinu kemur fram að árangur skólans byggist á heimsklassa þekkingu Íslands þegar kemur að fiskveiðum og samstarfi við stofnanir í samstarfslöndum. Skólinn, sem starfar undir merkjum UNESCO, hefur útskrifað um 500 sérfræðinga úr sex mánaða námi í fiskistjórnun, auk þess sem 1.700 sérfræðingar hafa sótt styttri námskeið við skólann.
Funny Mkwiyo, nemandi frá Malaví, lýsir náminu sem „einstakri og umbreytandi reynslu“ og segir það hafa veitt henni „hagnýta innsýn og þróuð hugtök“ sem hún geti notað til að efla sjávarútveg heimalands síns.
Nánar má lesa um velgengni skólans og upplifun nemenda í nýjasta tölublaði Ægis.