Óvænt kolmunnaveiði

Deila:

Bjarni Ólafsson AK kom til löndunar í Neskaupstað í morgun með tæplega 900 tonn af kolmunna. Aflinn fékkst á einum og hálfum sólarhring út af Norðfjarðardýpi, um 60 mílur frá landi. Gísli Runólfsson skipstjóri segir að það komi mönnum á óvart að þarna skuli veiðast kolmunni á þessum árstíma.

„Þarna virðist vera töluvert af fiski og þarna er um ágætan fisk að ræða. Ástæðan fyrir því að við komum inn er sú að við rifum trollið og þurftum að fá viðgert. Við förum aftur út í kvöld þegar búið verður að landa og gera við. Aflinn fékkst í tveimur holum og fiskurinn er tekinn ofarlega eða á 60-80 föðmum. Yfir nóttina hverfur fiskurinn alveg og þá er látið reka þannig að það er einungis dregið yfir daginn. Það er frábært að fá svona verkefni að lokinni makríl- og síldarvertíð. Vonandi verður bara framhald á þessari veiði,“ sagði Gísli í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Ljósmynd Hákon Ernuson.

Deila: