Útgerðarfélag Akureyringa 80 ára

Útgerðarfélag Akureyringa (ÚA) fagnaði á mándag áttatíu ára afmæli sínu. Félagið var formlega stofnað 26. maí 1945 eftir undirbúningsfund þann 14. mars sama ár, þar sem áhugi bæjarbúa á stofnun útgerðarfélags kom skýrt fram. Frá þessu greinir á vef Samherja.
Þar segir að tæpum tveimur árum eftir stofnun, þann 17. maí 1947, hafi fyrsti togari félagsins, Kaldbakur EA 1, komið til heimahafnar á Akureyri. Þetta 654 brúttótonna skip, smíðað í Englandi, markaði tímamót í atvinnulífi bæjarins og var tekið með mikilli hátíð af bæjarbúum.
Í tilefni afmælisins verður almenningi boðið að heimsækja fiskvinnsluhús ÚA á Fiskitanga laugardaginn 31. maí frá kl. 11:00 til 13:00. Gestir geta einnig skoðað togarann Kaldbak EA 1 og ljósmyndasýningu sem varpar ljósi á sögu félagsins. Aðgangur er ókeypis og kaffiveitingar í boði.
Á sjómannadaginn, sunnudaginn 1. júní kl. 13:00, opnar sýning í Iðnaðarsafninu á Akureyri þar sem saga og starfsemi ÚA er rakin í máli, munum og myndum. Sýningin er opin almenningi og aðgangur frír.
Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, lýsir í fréttinni ánægju sinni með að opna dyrnar fyrir almenningi á þessum tímamótum og hvetur bæjarbúa og gesti til að kynna sér starfsemi félagsins og sögu þess.
Útgerðarfélag Akureyringa hefur gegnt lykilhlutverki í atvinnulífi Akureyrar í áratugi og markar áttatíu ára afmælið mikilvægan áfanga í sögu félagsins og bæjarins