Ný Heimaey komin til hafnar

Ísfélag Vestmannaeyja tók fyrir helgi á móti nýju uppsjávarskipi, Heimaey VE 1, sem leysti af hólmi samnefnt skip sem selt var til Noregs. Nýja skipið, áður þekkt sem Pathway, var gert út frá Peterhead í Skotlandi og hefur nú verið endurnefnt Heimaey.
Við móttöku skipsins á laugardag voru mættir meðal annars Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins, Guðbjörg Matthíasdóttir, einn stærsti eigandi félagsins, ásamt syni sínum Kristni Sigurðssyni og Stefáni Friðrikssyni, forstjóra Ísfélagsins. Eyjafréttir greina frá þessu. Skipið er með burðargetu upp á 2.500 tonn, samanborið við 2.000 tonn gamla skipsins. Það var smíðað hjá Karstensens skipasmíðastöðinni í Skagen í Danmörku, sem er þekkt fyrir að smíða bestu uppsjávarskipin í heiminum í dag.
Að innan er skipið glæsilegt og hefur verið vel gengið um það, þannig að það lítur út eins og nýtt. Skipstjórar eru Ólafur Einarsson og Sigurður Rúnar Sigfússon, og yfirvélstjórar eru Fannar Veigar og Ágúst Halldórsson.