Óvissa framundan

Deila:

Uppsjávarveiðiskipin Venus NS og Víkingur AK komu bæði til Vopnafjarðar með kolmunnaafla um helgina. Aflinn fékkst syðst í færeysku lögsögunni og að sögn Hilmars Kárasonar, 2. stýrimanns á Venusi, hafa aflabrögðin verið treg.

,,Kolmunninn er greinilega að ganga suður eftir til hrygningar og aflabrögðin eru nú mun betri í írsku lögsögunni en þeirri færeysku. Við vorum að fá um 150 tonna afla á sólarhring og Víkingur var með svipaðan afla. Reyndar var aflinn enn tregari síðasta sólarhringinn,” segir Hilmar í samtali á heimasíðu HB Granda, en hann segir afla Venusar í veiðiferðinni vera um 650 tonn.

Hilmar segir óvissu ríkja um framhaldið.

 

Deila: