Ráðgjöf Hafró kynnt á föstudag

Deila:

Hafró kynnir úttekt á ástandi helstu nytjastofna og ráðgjöf um veiði á föstudaginn kemur, 6. júní klukkan 09:00 í húsakynnum stofnunarinnar. Fundinum verður einnig streymt á Teams.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

08:30 – Húsið opnar (léttar kaffiveitingar)

09:00 – Inngangur

09:10 – Kynning á nýjum aflareglum fyrir ýsu og ufsa (Pamela Woods)

09:25 – Ráðgjöf um meðafla (Guðjón M. Sigurðsson)

09:40 – Ástand þorskstofna í Atlantshafi (Jónas P. Jónasson)

10:00 - Kynning ráðgjafar fyrir fiskveiðiárið 2025/2026 (Bjarki Þ. Elvarsson).  Í kjölfarið er boðið upp á spurningar og svör í sal (ekki frá gestum í fjarfundi).

10:45 – Almennar umræður: t.d nánar um ráðgjöf einstakra tegunda – farið í forsendur, og eftir atvikum nánar í aðrar tegundir, að ósk fundarmanna.

11:00 – Lok fundar

Þáttakendur eru beðnir um að skrá sig hér eigi síðar en á hádegi fimmtudaginn 5. júni 2025.

Tengill fyrir fjarfund verður settur inn hér í fréttina á morgun, þriðjudaginn 3. júní.

Deila: