Veður setur strik í strandveiðar

Deila:

Veðurspá er líkleg til að hamla strandveiðum að verulegu leyti þessa vikuna. Örfáir bátar fóru út á miðnætti á vestanverðu landinu og voru úti fram undir hádegi en þá var veður orðið mjög slæmt.

Hvergi er útlit fyrir veiðiveður á landinu á morgun, þriðjudag. Útlitið er ekki mikið betra á miðvikudag. Tvísýnt er með fimmtudag en áfram verður þá stíf norðanátt víða um land.

Deila: