Framkvæmdum lokið á Reykhólum

Deila:

Endurbyggingu Karlseyjarbryggjunnar í Reykhólahreppi, sem hófst formlega 13. september 2022, er lokið eftir flóknar framkvæmdir og óvæntar áskoranir. Bryggjan, sem upphaflega var byggð árið 1976, hafði orðið fyrir mikilli tæringu og skemmdum, sem gerðu endurbyggingu nauðsynlega.

Verkið, sem bar heitið „Reykhólahreppur – Karlsey, endurbygging stálþils 2022“, var undir umsjón Vegagerðarinnar með hafnarstjórn Reykhólahrepps sem verkkaupa. Verktakinn Borgarverk ehf. sá um framkvæmdirnar, sem reyndust flóknari en upphaflega var áætlað vegna hruns gömlu bryggjunnar á framkvæmdatíma. Gamla stálþilið lagðist ofan í þilskurð og olli ófyrirséðum töfum.

Þrátt fyrir þessar áskoranir tókst að ljúka framkvæmdunum með úttekt í nóvember 2024. Höfnin er nú aftur formlega opin fyrir siglingar og notkun, sem mun bæta aðstöðu fyrir Þörungaverksmiðjuna og aðra notendur hafnarinnar.

Nánar má lesa um málið hér.

Deila: