Ísland kemur að mótun sjávarútvegsstefnu í Síerra Leóne

Sendiráð Íslands í Freetown og tveir íslenskir sérfræðingar á sviði fiskimála hafa á undanförnum mánuðum unnið náið með sjávarútvegsráðuneyti Síerra Leóne og Alþjóðabankanum að mótun heildstæðrar stefnu og aðgerðaáætlunar fyrir þróun sjávarútvegs í landinu.
Í ferlinu fór fram víðtækt samráð við helstu hagsmunaaðila, þar á meðal fiskimannasamfélög, smábátaveiðimenn og iðnaðinn. Í byrjun mánaðar var stefnan kynnt opinberlega við hátíðlega athöfn af hálfu stjórnvalda í Síerra Leóne.
Ásdís Bjarnadóttir, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Freetown, flutti ávarp við tilefnið og lýsti ánægju með þátttöku Íslands í verkefninu. Hún sagði það í takt við stefnu íslenskra stjórnvalda í alþjóðlegri þróunarsamvinnu að beita sér þar sem íslensk sérþekking nýtist best.
Í ávarpi sínu lagði Ásdís jafnframt áherslu á mikilvægi sjálfbærrar nýtingar á sjávarauðlindum og vonaðist til að sjávarútvegur gæti orðið burðarás í efnahagslegri þróun Síerra Leóne — þróun sem allir landsmenn gætu notið góðs af. Hún lagði áherslu á að vísindaleg og markviss fiskveiðistjórnun væri þar lykilatriði.
Framtíðarsýn stefnunnar gerir ráð fyrir að árið 2035 verði Síerra Leóne í fararbroddi á sviði sjálfbærrar fiskveiði og fiskeldis í Vestur-Afríku.
Stefnan byggir á þremur meginstoðum:
-
Aukinni gagnaöflun og greiningu á stofnstærðum og afla,
-
innleiðingu markvissrar fiskveiðistjórnar og auknu eftirliti með veiðum,
-
og bættri verðmætasköpun í greininni, meðal annars með betri meðferð afla, nýsköpun og innviðauppbyggingu.
Þátttaka Íslands í þessu stefnumótunarferli er liður í tvíhliða þróunarsamvinnu við Síerra Leóne, og litið er á heildstæða framtíðarsýn sem mikilvægan grunn að áframhaldandi samstarfi á sviði sjávarútvegs.
Mynd frá fiskveiðum í Sierra Leone, í janúar 2020.