Konur ryðja sér til rúms hjá Hafró

Deila:

Hafrannsóknastofnun fagnar 19. júní – hátíðar- og baráttudegi kvenna – með því að vekja athygli á þeirri miklu þróun sem átt hefur sér stað innan stofnunarinnar í átt að auknu jafnrétti.

Á þessum degi árið 1915 fengu sumar íslenskar konur kosningarétt og í tilefni dagsins bendir stofnunin á að í dag eru konur orðnar tæplega helmingur þess vísindafólks sem starfar hjá Hafrannsóknastofnun. Það er mikil breyting frá því sem áður var.

Þó hallar enn á konur þegar kemur að áhöfnum rannsóknaskipanna, sem enn eru að mestu skipaðar körlum, þá má engu að síður fagna sögulegum tímamótum sem urðu í vetur. Þá tók kona í fyrsta sinn tímabundið við stöðu yfirvélstjóra á Bjarna Sæmundssyni.

Það var Gyða María Norðfjörð Símonardóttir vélstjóri sem sinnti hlutverkinu og fékk að launum blómvönd fyrir framlag sitt – enda tímamót að kona gegni þessu hlutverki. Gyða María starfar nú sem vélstjóri um borð á Árna Friðrikssyni.

Framgangur kvenna innan Hafrannsóknastofnunar er til marks um breytta tíma og vaxandi fjölbreytileika í störfum sem áður voru nær eingöngu unnin af körlum.

Myndin er frá vef Hafró

Deila: