Aðmíráll danska flotans heimsótti Landhelgisgæsluna
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar tók í síðustu viku á móti Torben Mikkelsen aðmírál danska flotans, ásamt samstarfsmönnum í höfuðstöðvum Landhelgisgæslunnar. Starfsemi Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð, á Reykjavíkurflugvelli og í Keflavík var kynnt fyrir dönsku sendinefndinni.
Með í för var einnig Gorm Bergqvist sem tók á dögunum við 1. flotadeild danska sjóhersins.
Landhelgisgæslan hefur um langt árabil átt í miklu samstarfi við danska flotann sem annast eftirlit-, löggæslu, leit og björgun við Grænland og Færeyjar. Reglulega eru haldnar sameiginlegar æfingar og á Landhelgisgæslan í daglegu samstarfi við Arktisk Kommando (MRCC Grønland – Joint Arctic Command) sem varð til árið 2012 við sameiningu stjórnstöðvanna á Grænlandi og í Færeyjum. Varðskip danska flotans sem og loftför flughersins sem starfrækt eru frá Grænlandi, umhverfis Færeyjar og annarstaðar á norðlægum slóðum heyra undir höfuðstöðvarnar og skiptast stjórnstöðvarnar daglega á upplýsingum til að hafa sem gleggsta stöðumynd af hafsvæðinu umhverfis Ísland, Grænland og Færeyjar.