Fullfermi hjá báðum skipum ufsann vantar

Deila:

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu báðir fullfermi í Eyjum í gærmorgun, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Þar segir að vertíðin hafi verið góð en að nú hafi verið hægt á hjá báðum skipum.

Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, segir í fréttinni að aflinn hafi að þessu sinni fengist á Papagrunni auk þess sem tvö hol hafi verið tekin í Berufjarðarál. Þar hafi árangurslaust verið leita að ufsa. „Aflinn var að mestu leyti ýsa og síðan dálítill þorskur með. Það var ævintýraleg veiði á vetrarvertíðinni og uppistaðan í veiðinni var þorskur. Nú verða menn að einbeita sér að öðrum tegundum,” segir Egill Guðni.

Jón Valgeirsson á Bergi tekur í svipaðan streng. Mikil þorskveiði hafi verið í vetur og að nú þurfi að horfa til annarra tegunda. „Við vorum fyrir austan á sömu slóðum og Vestmannaey og aflinn var mest ýsa, dálítið af þorski og smotterí af ufsa. Það var fínasta veður allan túrinn nema á heimleiðinni, þá fengum við bræluskít. Nú verður hægt verulega á veiðinni hjá okkur, en það hlaut að gerast eftir vertíðina sem var rífandi góð,” segir Jón.

Vestmannaey og Bergur munu væntanlega halda á ný til veiða á fimmtudaginn og verður það líklega síðasti túr skipanna fyrir sjómannadagshelgi.

Deila: