Metdagur á strandveiðum

Deila:

Metdagur var á strandveiðum í gær, mánuadg, þegar 461 tonn kom að landi. Tólf dagar eru nú liðnir af vertíðinni. Þeir sem hafa komist alla daga hafa þannig lokið veiðum í maímánuði. Óveidd eru nú 6.240 tonn af þorski.

Samtals hafa 698 bátar landað á yfirstandandi vertíð. Bátarnir hafa farið í 7,7 róðra að jafnaði en hafa ber í huga að margir voru á grásleppuveiðum við upphaf vertíðarinnar. Samkvæmt tölum frá Fiskistofu hafa aðeins fimm bátar róið alla dagana tólf. 84 hafa farið ellefu róðra.

Mestu þorskafla hefur Þrymurr SK 72 landað, eða 9.750 kílóum. Það gerir 812 kíló að meðaltali, sem er nokkuð umfram leyfilegan hámarksafla.

Aflahæsti báturinn þegar kemur að ufsa er Steðji VE 24, sem hefur landað 2,1 tonni af ufsa.

 

Deila: