Samherji hagnaðist um 8,8 milljarða

Rekstrarhagnaður af samstæðu Samherja árið 2023, eftir skatta, nam 8,8 milljörðum króna. Þetta kemur fram á vef Samherja.
Fram kemur að á árinu 2023 hafi Samherji selt afurðir fyrir 62,5 milljarða króna og að sölutekjur hafi aukist vegna afurða um 10% frá árinu á undan. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) hafi numið 11,1 milljörðum króna og jukist um 6,7% frá árinu á undan í uppgjörsmynt félagsins.
Eignir Samherja hf. í árslok 2023 námu 109,7 milljörðum króna og eigið fé var 80 milljarðar króna. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar í árslok var 72,9% en var 74% í árslok 2022. Eiginfjárhlutfall hefur haldist hátt undanfarin ár sem endurspeglar traustan efnahag félagsins.
Á árinu 2023 voru að meðaltali 722 ársverk hjá samstæðunni en þau voru 686 árið 2022. Launagreiðslur námu samtals 9,4 milljörðum króna.