Mikill munur íshlutfalls í einu tilfelli

Deila:

Fiskistofa birtir nú niðurstöður vigtana m.t.t. íshlutfalls hjá þeim vigtunarleyfishöfum þar sem veiðieftirlitsmenn Fiskistofu hafa viðhaft eftirlit með endurvigtun á tímabilinu 1. júlí til 31. ágúst 2018. Munur á skráðu íshlutfalli án yfirstöðu eftirlitsmanns og við yfirstöðu hans var mestur 10 prósentustig. 12,36%  að eftirlitsmanni fjarstöddum, en við yfirstöðu eftirlitsmanns reyndist það 2,31%.

Taflan hér að neðan sýnir samanburð á  vegnu meðalíshlutfalli hvers vigtunarleyfishafa og íshlutfallinu þegar  eftirlit var haft með vigtuninni.

Fiskistofa íshlutfall sept 2018

Vegið meðalíshlutfall er íshlutfall vigtunar þegar tekið er tillit til heildarmagns sem vigtað er í öllum vigtunum  frá tilteknu skipi hjá viðkomandi leyfishafa.

Þessi tala er borin saman við íshlutfallið þegar eftirlitsmaður er viðstaddur endurvigtun og mismunurinn í prósentustigum er birtur.

Taflan sýnir einnig heildarafla sem viðkomandi skip landaði hjá vigtunarleyfishafanum á tímabilinu.

„Ástæður  breytilegs íshlutfalls geta verið margvíslegar. Það er hlutverk Fiskistofu að hafa eftirlit með að vigtun á sjávarafla sé sem réttust. Til þess að rækja það hlutverk sem best beitir  Fiskistofa margvíslegum aðferðum og  má í því sambandi nefna samvinnu við útgerðir og vinnslur, áhættugreiningu og aðgengi allra að upplýsingum um veiðar og afla,“ segir á vef Fiskistofu.

Skýringar: 

Blaðsíðutölin á myndinni vísa á gögn  um viðkomandi  landanir og endurvigtanir í skjalinu hér að neðan.

Feitletruðu hlutfallstölurnar sýna í prósentustigum mismuninn á íshlutfalli í aflanum við endurvigtun að viðstöddum eftirlitsmanni í samanburði við meðalísmagn í öllum afla viðkomandi skips sem aðili  vigtaði á tímabilinu. Mismunurinn  birtist í prósentustigum.

 

Deila: