Ráðherra fær skýrslu um verndun hafsins

Deila:

Stýrihópur sem settur var á laggirnar til að skilgreina áherslur Íslands um vernd hafsvæða í íslenskri lögsögu hefur skilað lokaskýrslu til Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra. Frá þessu er sagt á vef Stjórnarráðsins.

Þar segir að áherslur Íslands taki meðal annars mið af markmiðum Samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni en í skýrslunni eru lagðar fram tillögur um áherslur í starfi stjórnvalda og hvaða svæði geta talist til verndarsvæða í hafi með hliðsjón af núverandi stjórnun verndunar og nýtingar.

Stýrihópurinn telur að í ljósi stöðu þekkingar á vistkerfum hafsins sé talsverð áskorun að ná markmiði um verndun 30% efnahagslögsögu Íslands fyrir árið 2030 í skilningi stefnu samningsins um líffræðilega fjölbreytni. Hins vegar sé raunhæft að stíga strax skref byggð á þeirri þekkingu og því stjórnkerfi sem er til staðar og skilgreina hvernig unnið verði að þessu markmiði á næstu árum.

Að beiðni stýrihópsins vann Hafrannsóknastofnun einnig viðauka við skýrsluna sem inniheldur mat á núverandi reglugerðum. Matið er unnið með tilliti til annarrar virkrar svæðisverndar sem niðurstöður um útnefningu slíkra svæða byggja á.

„Verndarsvæði í hafi gegna mikilvægu hlutverki í að tryggja verndun líffræðilegrar fjölbreytni, sem er grunnforsenda sjálfbærrar nýtingar auðlinda hafsins. Þessi skýrsla er lykilskjal í að varpa ljósi á stöðu Íslands gagnvart alþjóðlegum skuldbindingum í þessu samhengi“ sagði matvælaráðherra. „Við höfum þegar stigið mikilvægt skref með því að ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu mína um að hefja þegar í stað vinnu við mótun heildstæðrar stefnu fyrir hafið sem verði í samræmi við tillögur skýrslunnar“.
Í skýrslunni er m.a. lagt til að á komandi árum verði lögð áhersla á verndun sérstæðra og viðkvæmra vistkerfa í hafi. Kortleggja þurfi svæði með hátt verndargildi og samhliða vinna skipulega að rannsóknum á þeim svæðum þar sem líklegt þykir að slík vistkerfi finnist.

Einnig er lagt til að koma á verndun hafsvæða utan meginveiðisvæða á grundvelli varúðarnálgunar þannig að leyfi til nýtingar grundvallist almennt á að framkvæmdar séu áður rannsóknir innan svæðanna. Jafnframt að uppfæra stefnu í málefnum hafsins og hefja skilgreiningu svæðisbundins skipulags innan efnahagslögsögu.

Að auki eru lagðar fram tillögur um þverfaglega samvinnu innlendra stofnana.

Skýrsluna má nálgast hér.

Viðauka Hafrannsóknastofnunar má nálgast hér.

Deila: