Áforma stórt laxeldi í Fjallabyggð
Til stendur að ala ófrjóan lax Fjallabyggð. Að baki verkefninu stendur Róbert Guðfinnsson, stofnandi Genís og einn eigenda Hólshyrnu. Til stendur að framleiða 20 þúsund tonn á ári og velta þannig um 26 milljörðum árlega. Morgunblaðið greindi fyrst frá.
Fjárfestingin hleypur á 20 milljörðum króna en auk þess þarf að verja 10 milljörðum í lífmassa. Áætlanir gera ráð fyrir að fimm ár taki að koma eldinu á koppinn, eftir að leyfi hafa fengist.
Óformin gera ráð fyrir þríþættu eldi; seiðaeldi á Siglufirði, landeldi í Ólafsfirði og áframeldi í sjókvíum í fjörðum á Tröllaskaga.
Fram hefur einnig komið að sjö nærliggjandi sveitarfélögum hafi verið boðinn hlutur í félaginu endurgjaldslaust. Það heitir Kleifar fiskeldi. „Þannig munu sveitarfélögin sem gefa samþykki sitt fá 10,1% af öllum arðgreiðslum félagsins um ókomna framtíð. Við ætlum að tryggja það að sveitarfélögin fái sinn skerf og að ekki gerist aftur það sama og þegar kvótakerfið í sjávarútvegi var endurskipulagt með tilheyrandi hagræðingu, að sveitarfélögin sátu eftir tekjulaus,“ er haft eftir Róberti.