Byggðakvóti fyrir Bolungarvík

Deila:

Fiskistofa auglýsir á vef sínum eftir umsóknum um Byggðakvóta fyrir Bolungarvík. Auglýst er eftir umsóknum samkvæmt ákvæðum reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2023/2024. Um er að ræða fyrstu auglýsinguna um byggðakvóta á fiskveiðiárinu.

Sækja skal um byggðakvóta í gegnum umsóknagátt. Til þess að opna umsóknagáttina þarf að nota kennitölu og íslykil  útgerðarinnar. Fylla skal út allar upplýsingar sem beðið er um. Umsóknafrestur er til og með 27. desember 2023.

Deila: