Nýtt ECO fiskiker hjá Sæplasti

Sæplast á Dalvík hefur kynnt til sögunnar nýtt og endurhannað 460 lítra ker en ker af þessari stærð frá fyrirtækinu hafa notið mikilla vinsælda í sjávarútvegi á Íslandi frá því Sæplast hóf framleiðslu á því. ECO fiskikerið er endurhannað á grunni eldri 460 lítra kersins og er 8 kílóum léttara en eldra PE kerið, þ.e. 42 kíló í stað 50 kílóa áður. Nýju kerin eru að fullu endurvinnanleg og eru framleidd úr rafmagni í stað olíu.
Endurnýtingarhringnum lokað
Fyrsta kerið var afhent keraleigufyrirtæki Sæplasts, iTUB og fer vel á því þar sem Sæplast fagnar 40 ára afmæli í ár. Arnar Snorrason, framkvæmdastjóri Sæplasts í Evrópu, segir að kerið hafi verið samstarfsverkefni með iTUB þar sem markmiðið hafi verið að byggja á traustum grunni og vinsældum eldra 460 lítra kersins sem fyrirtækið hóf að framleiða fyrir 40 árum.
„Nýja kerið, sem við nefnum ECO, vísar í sjálfbærnistefnu félagsins þar sem varan verður að vera sterk, endingargóð og falla vel í hringrásarhagkerfið. ECO fiskikerin loka endurnýtingarhringnum hjá okkur því þessi nýju ker verða framleidd að hluta til úr plasti sem kemur úr eldri iTUB kerum. Þegar við hófum framleiðslu á polyethelene kerum á Dalvík fyrir um 25 árum horfðum við til þess að kerin yrðu endurvinnaleg að líftíma þeirra loknum,“ segir Arnar en nýjakerið kom fyrst fyrir almenningssjónir á Íslensku sjávarútvegssýningunni í Kópavogi sem lýkur nú síðdegis.
Sterk ker sem endast lengi
„Með framleiðslu PE keranna erum við að fylgja markmiðum hringrásarhagkerfisins, að framleiða gríðarlega sterka vöru sem hefur langan endingartíma. Það er hægt að gera við kerin og lengja líftíma þeirra og þau eru að fullu endurvinnaleg og síðast en ekki síst þá erum við með deilihagkerfi í gegnum leigufyrirtæki okkar, iTUB.
Kerin okkar eru mikið notuð til flutnings, geymslu og framleiðslu á matvælum um allan heim. Þau eru þekkt fyrir framúrskarandi gæði, endingu og öryggi, t.d. endist hrávaran sem geymd er í okkar vörum mun lengur og er því öruggari en ella og þannig leggjum við okkar að mörkum við að auka mætvælaöryggi í heiminum,“ segir Arnar.