Matvælaráðherra fram að kosningum

360
Deila:

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra gegnir hlutverki matvælaráðherra í starfsstjórn sem situr fram að kosningum þann 30. nóvember næstkomandi. Fyrir vikið er hann orðinn æðsti ráðamaður málefna sjávarútvegsráðherra. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir hefur því látið af störfum.

Starfsstjórnin er skipuð Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki en Vinstri grænir taka ekki þátt. Ráðherrar flokkanna tveggja hafa því tekið við þeim ráðherraembættum sem VG gegndi í fráfarandi ríkisstjórn.

Bjarkey var matvælaráðherra frá 10. apríl 2024.

 

Deila: