„Ég held að allir skipstjórar séu á sama máli”

„Hérna áður fyrr þóttu það tíðindi ef sást til hvala en staðan í dag er allt önnur. Ég taldi rúmlega tuttugu hvali á siglingu inn Eyjafjörðinn um daginn,” segir Birkir Hreinsson, skipstjóri á uppsjávarskipinu Vilhelm Þorsteinsson, í viðtali á vef Samherja. Þar er rætt við þá Guðmund Þ. Jónsosn, sem báðir eru skipstjórar á skipinu.
Tilefnið er að Hafró ákveð nýverið að engar loðnuveiðar yrðu leyfðar á fiskveiðiárinu. Bent er á að loðnan sé næst mikilvægasta fiskitegundin sem Ísland flytji út, á eftir þorski. Þeir binda báðir vonir við að mælingar á stofninum í janúar verði jákvæðari og veiðar leyfðar í kjölfarið. Mælingarnar í haust sýndu að stofninn er nálægt þeirri stærð sem þurfi til að Hafrannsóknarstofnun gæti gefið grænt ljós á upphafskvóta.
„Þetta er náttúrulega ekki góð staða. Áður hafði verið sagt að umhverfisáhrif væru um margt jákvæðari. Við getum hins vegar ekki horft fram hjá því að hvalir éta óhemju mikið magn af loðnu, sem auðvitað bitnar á stærð loðnustofnsins, það segir sig nokk sjálft. Alþingi ákvað hins vegar að friða hvali að mestu, þannig að stofnanirnar fá að stækka og dafna í friði og við sjáum afleiðingarnar. Það má hins vegar varla tala upphátt um að heimila nauðsynlegar hvalveiðar, þá verður allt vitlaust í ákveðnum hópum í þjóðfélaginu. Ég held að allir skipstjórar séu á sama máli, hvölum hefur fjölgað gríðarlega og eru síður en svo í útrýmingarhættu. Vissulega er fæðukeðjan í hafinu flókin, mér skilst að langreyður geti étið um eitt tonn af loðnu á sólarhring og hnúfubakur hálft tonn,“ er haft eftir Guðmundi.
Birkir tekur í svipaðan streng. „Hérna áður fyrr þóttu það tíðindi ef sást til hvala en staðan í dag er allt önnur. Ég taldi rúmlega tuttugu hvali á siglingu inn Eyjafjörðinn um daginn. Þegar skip eru að hífa inn troll eru oft á tíðum tugir hvala við veiðarfærinsem segir sína sögu. Loðnuveiðibann hefur ekki aðeins áhrif á útgerðirnar og sjómenn uppsjávarskipanna. Mörg byggðarlög reiða sig á loðnuna, ekki síst á austanverðu landinu og í Vestmannaeyjum. Við erum að tala um svo stórar tölur að þær hafa áhrif á hagvöxt alls þjóðarbúsins. Þess vegna verðum við að taka alvöru umræðu um hvalveiðar, stofnarnir hafa stækkað hratt á undanförnum árum og líklega aðrir farnir að láta undan,“ segir Birkir Hreinsson skipstjóri.
Í fréttinni er einnig rætt við Hákon Þ. Guðmundsson, útgerðarstjóra Samherja, sem bindur vonir við að mælingar síðar í vetur muni sýna að stofninn sé nógu stór til að heimila veiðar. Hann segir að skipstjórar sendi sér oft myndir af miklum lóðningum á loðnu. Þær séu teknar utan hefðbundinna leiðarlína rannsóknarskipa. Hann bendir á að togaraflotinn sé vel tækjum búinn. Mikilvægt sé að nýta þær upplýsingar sem þaðan koma.