Opið fyrir umsóknir um grásleppuveiðileyfi

Deila:

Fiskistofa hefur opnað fyrir umsóknir um grásleppuveiðileyfi. Hægt er að hefja veiðar 1. mars eða velja aðra upphafsdagsetningu.

Veiðidagarnir verða 25 talsins. Endanleg ákvörðun um dagafjölda mun liggja fyrir þann 1. apríl.

Fram kemur að á tímabilinu frá 1. mars til 20. mars telji hver löndun sem einn veiðidagur. Eftir það teljast dagar með sama hætti og verið hefur.

Fiskistofa útskýrir dagatalningu á eftirfarandi hátt:

„Á tímabilinu 1. – 20. mars landar bátur í átta skipti þá telst það sem 8 dagar og gildir þá veiðileyfið í 17 daga frá og með 20. mars til og með 6. apríl.“

Deila: