Hálfhringshopparar í stað rockhopper

Deila:

Dótturfyrirtæki Hampiðjunnar, Mørenot Fishery, hefur hannað, sótt um einkaleyfi fyrir og sett á markað nýstárlega lausn fyrir veiðar með botntrollum sem hönnuð er til að hámarka veiðigetu á sama tíma og umhverfisáhrif eru lágmörkuð. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þar er því lýst að um sé að ræða nýja gerð af hopparalengju, Flow Gear, sem byggð sé upp af hálfhringjum úr plasti í stað stórra gúmmihringja. „Straumlínulagað form hálfhringslengjunnar dregur úr mótstöðu í vatni og á sjávarbotni, sem minnkar álag og dregur úr orkunotkun. Plasthálfhringurinn er sveigjanlegur og fjaðrar undan álagi og höggum og  beyglast ekki og skemmist eins og ef stál væri notað í stað plastsins. Að auki bætir nýja hopparalengjan bæði opnun og stöðugleika trollsins í drætti. Prófanir hafa einnig sýnt að þegar vatn flæðir yfir hálfhringlaga hönnunina eykst vatnshraðinn í átt að miðju trollsins, sem leiðir fiskinn betur inn í trollið og gefur meiri veiði,” segir í tilkynningunni.

Fram kemur að lengja sé umhverfisvæn því snertiflöturinn sé úr stáli og minna sé um slit en á rockhoppergúmmíinu. „Hún hefur minni áhrif á hafsbotninn sem er mikilvægt framfaraskref í samanburði við hefðbundinn búnað. Með minni togmótsstöðu sparast olía og veiði á hverja togstund eykst sem lækkar kolefnissporið umtalsvert. Búist er við að þessi búnaður, sem nú er í einkaleyfisferli, muni bylta botnvörpuveiðum bæði fyrir útgerðaraðila og umhverfið.”

Helstu kostir:

  • Allt að 40-50% aukin veiðigeta
  • Hönnuð með yfirburða straumlínulögun
  • Léttari í drætti
  • Auðveldara að fara yfir hindranir á sjávarbotni
  • Minni áhrif á sjávarbotn
  • Minni mótstaða og eldsneytisnotkun

Í tilkynningunni segir að fyrstu tilraunaútgáfur hafi leitt í ljós að ýmislegt hafi mátt betur fara. Sú reynsla hafi verið nýtt til að betrumbæta hönnunina. Hálfhringirnir hafi meðal annars verið stækkaðir umtalsvert.

„Þessi nýja tækni er mikilvægur áfangi í þróun umhverfisvænna lausna fyrir sjávarútveginn. Með Flow Gear hopparalengjunni erum við ekki aðeins að bæta veiðinýtni heldur einnig að draga verulega úr áhrifum á hafsbotninn og minnka kolefnissporið. Þetta er skref í rétta átt fyrir framtíðina og fyrir útgerðaraðila sem vilja auka hagkvæmni með ábyrgum hætti,“ segir Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar.

Deila: