Skipuleggja þátttöku á sýningu í Kína

Deila:

Íslandsstofa skipuleggur þátttöku íslenskra aðila í sjávarútvegssýningunni China Fisheries & Seafood Expo sem haldin verður dagana 1.-3. nóvember 2017 í Qingdao í Austur Kína.

Björgvin Þór Björgvinsson, bjorgvin@islandsstofa.is, sér um að kynna sameiginlega hagsmuni sjávarútvegs, ábyrgar veiðar, vottun undir merkjum Iceland Responsible Fisheries sem og markaðsmál. Á sýningunni verður dreift bæklingi á kínversku um íslenskan sjávarútveg, vottun og helstu fisktegundir.

Fjöldi sýnenda og gesta á China Fisheries & Seafood Expo hefur meira en tvöfaldast á undanförnum árum og er sýningin stærsta sinnar tegundar í Asíu með yfir 28.000 gesti og um 1400 sýnendur. Sýningin er m.a. ætluð fyrirtækjum í vinnslu sjávarafurða, framleiðslu tækni- og tækjabúnaðar, sem og öðrum sem sinna þjónustu við sjávarútveginn. Þau íslensku fyrirtæki sem taka þátt eru About Fish, VSV, Iceland Pelagic, HB Grandi, Tríton, Seafood Reykjavik og Icelandic China.

Berglindi Steindórsdóttur sýningarstjóri hefur umsjón með þjóðarbás Íslands á sýningunni, berglind@islandsstofa.is.

Nánari upplýsingar um China Fisheries & Seafood Expo er að finna á vef sýningarinnar.

 

Deila: