Kynningarmyndbönd um strandveiðar

Landssamband smábátaeigenda og Strandveiðifélag Íslands tóku höndum saman fyrr á árinu og ákváðu að útbúa kynningarefni um strandveiðar. Til verksins var ráðin Rut Sigurðardóttir kvikmyndagerðamaður og trillukarl.
Upptaka fór fram á síðastliðnu sumri og var hluti efnisins frumsýndur á 40. aðalfundi LS 17. október.
Frá þessu er greint á vef LS.
Á síðu um veiðarnar segir meðal annars:
„Strandveiðar hafa verið stundaðar við Ísland frá landnámi. Þessi elsti atvinnuvegur Íslendinga hefur viðhaldist í aldanna rás, þar sem þekking og kunnátta hafa gengið kynslóðanna á milli. Í dag stuðla strandveiðar að sjálfbærum og umhverfisvænum veiðum, styðja við smærri samfélög og jafna aðgang að auðlindum sjávar.
Þrátt fyrir augljósa kosti strandveiða fyrir haf og þjóð hafa stjórnvöld haldið smábátaflotanum í spennitreyju svo áratugum skiptir. Til þess að rétta hlut trillukarla og kvenna innan sjávarútvegskerfisins hafa Landssamband smábátaeigenda og Strandveiðifélag Íslands tekið höndum saman og framleitt kynningarmyndbönd sem draga raunsæja mynd af lífi og starfi smábátasjómanna og framlagi þeirra til menningar, umhverfisverndar og hagsældar.”