Vel veiðist af kolmuna við Færeyjar

Barði NK kom til Neskaupstaðar á föstudagsmorgun með 1.850 tonn af kolmunna sem fengust í færeyskri lögsögu. Frá þessu er sagt á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Þar er rætt við Þorkel Pétursson skipstjóra.
„Við vorum að veiðum beint austur af nyrsta odda Færeyja, þar úti í landgrunnskantinum. Við vorum einungis þrjá daga á miðunum í heldur rysjóttu veðri; veðrið var stundum gott en leiðinlegt inn á milli og reyndar hundleiðinlegt á landleiðinni. Það gekk ágætlega að fiska. Við tókum fimm hol og það var stutt dregið eða frá 5 og upp í 17 tíma. Aflinn var frá 180 tonnum og upp í 420 tonn. Það voru ekki mörg skip að veiðum þarna. Auk okkar voru það tveir Rússar og einn Færeyingur auk þess sem Aðalsteinn Jónsson var þarna þegar við komum og Jón Kjartansson kom í restina. Kolmunninn sem þarna fékkst virðist vera fínn, feitur og lítur vel út. Hann er ábyggilega gott hráefni fyrir fiskimjölsverksmiðjuna,“ er haft eftir honum.
Haft er eftir verksmiðjustjóra fiskimjölsverksmiðjunnar að um sé að ræða úrvalshráefni, sem gott sé að vinna. Töluvert lýsi fáist úr fiskinum.
Skipið er nú komið til Akureyrar í slipp.