Fylltu skipið á 32 tímum

Börkur NK kom til Neskaupstaðar í gærkvöldi með 1.550 tonn af íslenskri sumargotssíld og hófst vinnsla á aflanum strax í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Þetta kemur fram á heimasíðu fyrirtækisins.
Þar er rætt við Hjörvar Hjálmarsson skipstjóra, sem segir að veiðin hafi gengið býsna vel. Aflinn hafi fengist á 32 klukkustundum í Jökultungunni út af Snæfellsnesi. Hann kom í þremur holum en dregið var í sex til átta tíma í senn. „Í fyrsta holinu fengust 500 tonn, 440 í öðru og 600 í því þriðja og síðasta. Það var fínt veður allan tímann og síldin er falleg Íslandssíld. Það má segja að þessi veiðiferð hafi gengið eins og í sögu. Ég geri ráð fyrir að vinnslu á þessum afla ljúki aðfaranótt fimmtudags og þá verður sennilega haldið rakleitt vestur fyrir land á ný,” er haft eftir Hjörvari.