Arctic Fish harmar slysasleppinguna

Deila:

„Við hörmum það að eldislax hafi sloppið úr kvíunum okkar í Patreksfirði. Þetta er mikið áhyggjuefni fyrir okkur.” Þetta segir í tilkynningu frá Arctic Fish, vegna slysasleppingar í kví fyrirtækisins í Kvígindisdal í Patreksfirði sem uppgötvaðist 21. ágúst síðastliðinn.

Í tilkynningunni segir að félagið hafi unnið markvisst í því að lágmarka umhverfisáhrif vegna slyssins. Í kjölfarið hafi viðbragðsáætlun fyrirtækisins verið virkjuð og starfsmenn hafi unnið náið með Fiskistofu og Matvælastofnun að rannsókn málsins. Viðbragðsáætlunin hafi meðal annars falist í því að leggja net í fjörðinn og tæma kvínna.

Fram kemur að sleppingar séu ein helsta rekstrar- og sjálfbærniáhætta Arctic Fish. „Þess vegna lítum við þetta atvik mjög alvarlegum augum og vinna stjórnendur hörðum höndum að því að finna leiðir til að lágmarka áhrif sleppingarinnar. Arctic Fish hefur því lagt til við Fiskistofu fyrir hönd sjóeldisfyrirtækja að kanna hvort það sé mögulegt að beita svokallaðri rekköfun í þeim ám þar sem fundist hefur eldisfiskur. Í því felst að ár eru kembdar með markvissum hætti og kannað hvort að þar leynist eldisfiskur. Reynist eldisfiskur vera í ánni er hann fjarlægður. Þessi aðferð hefur reynst vel í Noregi og mikil reynsla er af þessu þar. Arctic Fish og sjóeldisfyrirtækin hafa nú þegar komið á sambandi við aðila sem hafa komið að sambærilegum málum þar í landi og eru þau reiðubúin að taka þetta verkefni að sér á kostnað fyrirtækjanna. Fiskistofa hyggst kynna þessa hugmynd í dag fyrir Landsambandi Veiðifélaga.”

Enn fremur segir að fyrirtækið harmi málið. „Við teljum okkur vita hvernig götin mynduðust og vinnum nú að því að tryggja að þetta gerist ekki aftur. Jafnframt höfum við lagt til aðgerðir við Fiskistofu og boðist til að greiða kostnað við þær, sem ættu að tryggja að sá lax sem gengur upp í árnar nái ekki að blandast við villta laxa,“ er haft eftir Stein Ove Tveiten.

Deila: