Samherji undirbýr orkuskipti

Deila:

„Þær áætlanir sem við erum að vinna með núna, gera ráð fyrir að breyta skipi þannig að hægt verði að draga úr losun koldíoxíðs um 75% eða sem samsvarar þrjú þúsund tonnum á ári.” Þetta segir Hjörvar Kristjánsson, skipaverkfræðingur útgerðar hjá Samherja. Á vef fyrirtækisins er greint frá því að Orkusjóður hafi ákveðið að styrkja verkefni Samherja sem flest í því að hanna lausn og breyta ísfisktogara félagsins þannig að skipið geti nýtt grænt rafeldsneyti. Með slíkri breytingu dregur verulega úr kolefnislosun. Áætlaður kostnaður er hátt í tveir milljarðar króna og er stuðningur Orkusjóðs til þessa verkefnis 100 milljónir króna.

Styrkir Orkusjóðs eru liður í aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum og orkuskiptum. Áhersla er lögð vistvæna orkunýtingu sem og að styðja við orkuskipti um land allt. Hjörvar segir að mikil þekking sé innan félagsins á þessu sviði auk þess sem viðræður við ýmsa samstarfsaðila standi yfir. Um sé að ræða viðamikið verkefni. Samherji vilji leggja sitt af mörkum svo Ísland taki stór skref í átt að settum markmiðum í loftlagsmálum.

„Sömuleiðis viljum við stuðla að því að innlend fyrirtæki öðlist þekkingu á þeirri tækni sem þarf til að keyra skip á kolefnisfríu eldsneyti og vinnum því náið með leiðandi fyrirtækjum á þessu sviði. Við erum þegar í viðræðum við ýmis fyrirtæki í tengslum við þetta verkefni, auk þess sem mikil þekking er innan Samherja, sem hvortveggja gerir okkur kleift að vinna alla þætti með ákveðnum og hnitmiðum hætti. Allt er þetta kostnaðarsamt og eins og fyrr segir gera okkar áætlanir ráð fyrir því að kostnaðurinn við breytingar á einu skipi nálgist tvo milljarða króna,“ segir Hjörvar.

Deila: