Gullver í 40 ára skoðun

Deila:

Gullver NS hefur verið í slipp að Akureyri frá 25. ágústs. Sinna þurfti ýmsum viðhaldsverkefnum um borð auk þess sem 40 ára skoðun fór fram. Fram kemur í frétt á vef Síldarvinnslunnar að skipið hafi alla tíð átt heimahöfn á Seyðisfirði, skipið hafi reynst vel og fært mikinn afla að landi.„

Unnið hefur verið að allmörgum verkefnum um borð í Gullver fyrir norðan. Flest þeirra eru hefðbundin en til viðbótar kemur síðan 40 ára skoðunin. Þá hefur verið unnið við aðalvél og túrbínu skipsins og það þykktarmælt en það er gert á fimm ára fresti. Loks er skipið málað og gert virkilega fínt,“ segir á heimasíðu fyrirtækisins.

Haft er eftir Grétari Arnari Sigfinnssyni, rekstrarstjóra útgerðar Síldarvinnslunnar, að ekkert óvænt hafi komið upp við skoðunina. Gert sé ráð fyrir að slippferðin taki þrjár vikur eins og áætlað hafi verið í upphafi. „Við reiknum með að þetta klárist um helgina,“ er haft eftir Grétari.

Deila: