Samstarf um þróun eftirlits með fiskveiðum

Fiskistofa hefur undanfarin tvö ár leitt verkefni sem styrkt er af Norrænu ráðherranefndinni og snýst um þróun eftirlits með fiskveiðum. Frá þessu er greint á heimasíðu stofnunarinnar.
Verkefninu er skipt í fjóra hluta:
-
sjálfvirknivæðingu aflaskráningar
-
fjareftirlit með veiðum
-
áhættumat og áhættugreiningu
-
miðlun ýmissa upplýsinga á milli ríkja.
Fram kemur að slíkt alþjóðlegt samstarf sé afar mikilvægt fyrir Fiskistofu þar sem stofnunin fái tækifæri til að miðla þekkingu og læra af árangri annarra þjóða. Auk Íslands komi að verkefninu fulltrúar frá Færeyjum, Danmörku, Bretlandi, Grænlandi, Kanada og Noregi.
„Loka fundur hópsins var haldinn í Hafnarfirði í síðasta mánuði en þrátt fyrir að verkefninu sé nú lokið munu fulltrúar ríkjanna áfram vera í virku samtali um þessi viðfangsefni.”