Viðurkenning fyrir góða öryggisvitund

Deila:

Áhöfn Páls Pálssonar ÍS 102 hlaut á dögunum viðurkenningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg fyrir að hafa sýnt fremur góða öryggisvitund á námskeiðum Slysavarnarskóla sjómanna.

Skipstjóri er Páll Halldórsson en Sigríður Inga Pálsdóttir tók á móti viðurkenningunni fyrir hönd áhafnarinnar.

Jón Svanberg Hjartarson framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar afhenti viðurkenninguna sem er farandbikar til varðveislu í eitt ár ásamt veggskildi til eignar. Með Sigríði Ingu og Jóni á myndinni er Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna. Myndina tók Jón Svavarsson.

 

Deila: