Fengu styrk til að innleiða vatnaáætlun

Deila:

Hafró er í hópi 22 aðila sem hafa undir forystu Umhverfisstofnunar hlotið 3,5 milljarða króna styrk frá Evrópusambandinu fyrir verkefnið LIFE ICEWATER. Þetta verkefni hefur það að markmiði að efla og flýta innleiðingu vatnaáætlunar á Íslandi. Þetta kemur fram á vef Hafró. Þar segir að þessi styrkur sé einn sá stærsti sem Ísland hafi fengið frá evrópskum samkeppnissjóði.

Í fréttinni segir að Hafró leiði einn vinnupakka verkefnisins og taki þátt í fjölmörgum öðrum verkþáttum. Helstu áhersluatriði stofnunarinnar sé almenn ráðgjöf um vatnamál og vöktun og söfnun gagna um ferskvatn, árósavatn og strandsjó. Einnig sé lögð áhersla á fjölbreytta miðlun á upplýsingum og þekkingu.

„Verkefnið gefur tækifæri til nýsköpunar í stjórnsýslunni með þverfaglegu samstarfi ýmissa aðila með það fyrir augum að bæta vatnsgæði um allt land, auk þess að hámarka ábata samfélagsins af slíkum aðgerðum. Vinna við verkefnið hefst í janúar 2025 og lýkur árið 2030.”

Deila: