Fiskkaup kaupir Aðalbjörgu RE

Deila:

Tilboð útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækisins Fiskkaupa í Reykjavík á útgerðarfélaginu Aðalbjörgu RE hefur verið samþykkt. Með í þeim kaupum er safnefnt skip og aflaheimildir; 267 þorskígildistonn, þar af 93 tonn af þorski.

Fyrir gerir Fiskkaup út línuskipið Kristrúnu RE 177 og Jón Ásbjörnsson RE 777. Afli báta félagsins er um 3.500 tonn á ársgrundvelli. þetta kemur fram á vef Fiskifrétta.

Þar er rakið að Fiskkaup reki auk þess hátæknivædda fiskvinnslu í sérhönnuðu húsi á Granda.

Deila: