Vestmannaeyjatogararnir fiska vel fyrir austan

Deila:

Vestmannaeyjatogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE hafa verið að gera það gott fyrir austan upp á síðkastið. Því er sagt frá á vef Síldarvinnslunnar. Þar segir að Bergur hafi lalndað á Neskaupstað á mánudag og Vestmannaey í gær. Bæði skip voru með fullfermi.

Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergi, segir að veiðin hafi verið mjög góð í lok veiðiferðarinnar. Tekið var eitt hol á Víkinni og þaðan var farið á Höfðann þar sem veiddist vel. Gula teppið var næsti áfangastaður, þá Grunnfóturinn og loks var veitt sunnan við Tólf tonna pyttinn. Þar reyndist góð veiði; ýsa og þorskur.

Deila: