Fjórði seiðaflutningurinn hjá Laxey

Í vikunni fór fram fjórði flutningurinn á seiðum frá klakstöð yfir í upphafsfóðrun. Þetta kemur fram á vef Laxeyjar, sem er með starfsemi í Vestmannaeyjum.
Þar segir að þessi áfangi sé mikilvægur hluti af vaxtarferli seiðanna og marki enn einn áfangann í farsælli uppbyggingu eldisins.
„Flutningurinn gekk samkvæmt áætlun með góðum undirbúningi, nákvæmni og skipulagi. Samstarf og fagmennska eru lykilþættir í starfsemi okkar, og við erum stolt af því að sjá hversu vel ferlið hefur gengið. Við hlökkum til áframhaldandi vaxtar og þróunar í fiskeldinu,” segir í frétt á vef fyrirtækisins.