Gullver með hundrað tonn

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til Seyðisfjarðar síðdegis í gær að lokinni sex sólarhringa veiðiferð að því er fram kemur á vef SVN.
Afli skipsins var 103 tonn, mest þorskur og ýsa.
Rætt er við Þórhall Jónsson skipstjóra í fréttinni en þeir fóru víða. „Við vorum lengst í Lónsdýpi og á Stokksnesgrunni að reyna við karfa og ufsa. Þorskurinn var síðan að mestu tekinn í Litladýpi og á Fætinum en ýsuna fengum við helst við Hvalbakinn. Við enduðum svo túrinn á Tangaflaki og Gerpisflaki í leit að ýsu. Fiskurinn sem fékkst í þessari veiðferð var hinn þokkalegasti og veður var allt í lagi, allavega var engin bræla,“ er haft eftir Þórhalli.