Greiða 2.349 milljónir í arð

Síldarvinnslan hf. ákvað á aðalfundi sínum í gær að greiða hluthöfum 2.349,4 milljónir króna í arð vegna rekstrarársins 2024. Arðurinn verður greiddur 26. mars 2025. Þetta kemur fram í frétt á vef fyrirtækisins.
Í stjórn félagsins voru kjörin: Anna Guðmundsdóttir, Baldur Már Helgason, Erla Ósk Pétursdóttir, Guðmundur Rafnkell Gíslason og Þorsteinn Már Baldvinsson. Varamenn: Arna Bryndís Baldvins McClure og Ingi Jóhann Guðmundsson. Samsetning stjórnar uppfyllir ákvæði laga og samþykkta félagsins um kynjahlutfall.