Fjármögnun lokið á nýrri landeldisstöð Samherja

Deila:

Samherji fiskeldi ehf., dótturfélag Samherja hf., hefur tryggt 235 milljóna evra fjármögnun (um 34 milljarða króna) fyrir fyrsta áfanga nýrrar landeldisstöðvar, Eldisgarðs, sem rís við Reykjanesvirkjun. Fjármögnunin samanstendur af 125 milljóna evra hlutafjáraukningu og 110 milljóna evra sambankaláni, með þátttöku innlendra og erlendra fjárfesta.

Eldisgarður verður staðsettur í auðlindagarði HS Orku og mun nýta 100% endurnýjanlega orku, þar á meðal jarðsjó og ylsjó frá virkjuninni. Verkefnið verður unnið í þremur áföngum, með fullbyggðri framleiðslugetu upp á 40.000 tonn af laxi á ári. Jarðvegsframkvæmdir hófust í október 2024.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir fjármögnunina mikilvægt skref í átt að sjálfbæru fiskeldi og miklu trausti frá fjárfestum.

Sjá nánar hér.

Deila: