Íslenskur kombucha með þörungum

Hafrannsóknastofnun hefur birt niðurstöður áhugaverðrar frumrannsóknar á framleiðslu kombucha með íslenskum þörungum, sem nýlega birtist í vísindatímaritinu International Journal of Gastronomy and Food Science. Rannsóknin sýnir að framleiðsla á slíku kombucha gæti verið raunhæfur kostur fyrir íslenskan markað með tilliti til öryggis, bragðeiginleika og viðskiptamöguleika.
Bragðprófanir leiddu í ljós að íslenskir neytendur fundu ekki marktækan mun á bragði kombucha með eða án þörunga, sem bendir til þess að drykkurinn gæti fallið vel að smekk almennings. Þrátt fyrir jákvæðar niðurstöður varðandi bragð og öryggi eru frekari rannsóknir nauðsynlegar, sérstaklega hvað varðar þungmálma- og joðinnihald. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu lágt magn þungmálma og joðs, en bent var sérstaklega á þörf fyrir ítarlegri greiningu á magni arsens, kadmís og joðs í beltisþara.
Rannsóknin bendir jafnframt á mikilvægi þess að staðla reglur um öryggi matvæla áður en hægt er að samþætta þörungaafurðir að fullu inn á íslenska markaðinn. Með þessari rannsókn eru nýir möguleikar opnaðir á sviði sjálfbærrar nýsköpunar í íslenskri matvælaframleiðslu, þar sem nýting innlendra sjávarauðlinda fær aukið vægi.