Þorsteinn Már hættir sem forstjóri

Deila:

Þorsteinn Már Baldvinsson hefur tilkynnt að hann muni láta af störfum sem forstjóri Samherja hf. í júní næstkomandi, eftir að hafa gegnt því starfi í 42 ár, allt frá stofnun félagsins árið 1983. Í bréfi til starfsfólks segir hann að ákvörðunin hafi verið tekin á eigin forsendum og að tímasetningin sé heppileg. Sonur hans, Baldvin Þorsteinsson, sem hefur verið stjórnarformaður Samherja frá 2023 og er einn af stærstu hluthöfum félagsins, mun taka við forstjórastarfinu.

Þrátt fyrir að hætta sem forstjóri mun Þorsteinn Már áfram sitja í stjórnum félaga sem Samherji á stóran hlut í, þar á meðal Samherja fiskeldi ehf. og Síldarvinnslunni hf.

Þorsteinn Már rifjaði upp sögu Samherja í bréfi sínu og sagði meðal annars:

„Ég ákvað fyrir löngu síðan að ég ætlaði að hætta sem forstjóri á mínum forsendum áður en ég yrði gamall og leiðinlegur. Eftir rúma fjóra áratugi í svona starfi er eðlilegt að líði að starfslokum. Allt hefur sinn tíma og sjálfum finnst mér þessi tímasetning heppileg.“

Samherji hefur vaxið og dafnað frá stofnun og er í dag eitt stærsta og öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, með höfuðstöðvar á Akureyri og rúmlega 800 starfsmenn.

Þessi stjórnarskipti marka tímamót í sögu Samherja og íslensks sjávarútvegs.

Deila: