Gullver með 100 tonn

Deila:

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til löndunar á Seyðisfirði í vikunni með 100 tonn, mest ýsu og ufsa. Þetta var önnur löndun Gullvers á árinu en skipið landaði 40 tonnum eftir stuttan túr 17. janúar. Skipstjórinn Hjálmar Ólafur Bjarnason kveðst í fréttinni ánægður með aflann.

„Það var fínasti afli í þessum túr og það sem meira er að við fengum gott ufsaskot fyrst í túrnum. Það er gleðilegt að fá ufsaafla en það voru margir um hituna, þarna voru mörg skip að eltast við ufsann og veiðin á honum var búin eftir stuttan tíma. Eftir það lögðum við áherslu á ýsuna og það var fínasta kropp í henni. Við hófum túrinn í Berufjarðarál en síðan færðum við okkur í Hvalbakshallið og á Breiðdalsgrunn. Það var ágætis veður allan túrinn og engin ástæða til að kvarta undan veðrinu,“ er haft eftir honum.

Deila: