Bráðvantar bryta á Freyju

Deila:

Landhelgisgæslan auglýsir eftir bryta á varðskipið Freyju í fyrirhugaða eftirlitsferð frá 29. janúar til 23. febrúar. Þetta kemur fram á Facebooksíðu stofnunarinnar.

„Um frábært tækifæri er að ræða fyrir áhugasaman einstakling sem hefur matreiðslumenntun, sýnir drifkraft, sjálfstæði, frumkvæði og öguð vinnubrögð.
Áhugasamir geta haft samband við Svanhildi Sverrisdóttur, mannauðsstjóra Landhelgisgæslunnar, með því að senda tölvupóst á netfangið svanhildur@lhg.is,” segir í færslunni.
Deila: