Einstsakt myndasafn opnað

„Á löngum ferli hafði safnast saman mikið magn ljósmynda úr rekstri þeirra feðga Valtýs Þorsteinssonar og Hreiðars Valtýssonar og voru engum sýnilegar ofan í skúffum,“ segir Valtýr Þór Hreiðarsson í nýjasta tölublaði tímaritsins Ægis, en hann hefur nú opnað vefsíðuna raudavik.net þar sem hægt er að skoða þetta einstaka myndasafn.
Á síðunni er að finna ótal myndir frá tímabilinu fjórða áratugar síðustu aldar og fram yfir síðustu aldamót sem sýna fjölbreyttan rekstur feðganna í bátasmíði, útgerð og síldarsöltun, allt frá Rauðuvík í Eyjafirði til stórra síldarsöltunarstöðva á Hjalteyri, Raufarhöfn og Seyðisfirði. Nánar má lesa um þetta merka framtak og fletta upp fleiri myndum og sögum í nýjasta tölublaði Ægis.