Fínasta veður og ágætis veiði

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði fullfermi í heimahöfn í Vestmannaeyjum á mánudag. Birgir Þór Sverrisson skipstjóri segir á vef Síldarvinnslunnar að túrinn hafi gengið vel. „Þetta var stutt og laggott. Fínasta veður og ágætis veiði. Við byrjuðum á Péturseynni og tókum þar þrjú eða fjögur hol. Síðan færðum við okkur á Ingólfshöfðann og þar gekk þetta vel. Aflinn var mest þorskur en annars var þetta blandað; ýsa, langa, steinbítur og koli. Við lönduðum líka á miðvikudaginn eftir mjög stuttan túr. Veiðin í þeim túr var heldur róleg en þá fékkst mest af ýsu. Nú er framundan hjá okkur að njóta sjómannadagshelgarinnar,” er haft eftir Birgi Þór.
Systurskip Vestmannaeyjar, Bergur VE, er í slipp á Akureyri og mun hann ekki hefja veiðar á ný fyrr en eftir tvær eða þrjár vikur, að því er fram kemur í fréttinni.