Ráðgjöf Hafró kynnt á föstudag

Hafró kynnir úttekt á ástandi helstu nytjastofna og ráðgjöf um veiði á föstudaginn kemur, 6. júní klukkan 09:00 í húsakynnum stofnunarinnar. Fundinum verður einnig streymt á Teams.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
08:30 – Húsið opnar (léttar kaffiveitingar)
09:00 – Inngangur
09:10 – Kynning á nýjum aflareglum fyrir ýsu og ufsa (Pamela Woods)
09:25 – Ráðgjöf um meðafla (Guðjón M. Sigurðsson)
09:40 – Ástand þorskstofna í Atlantshafi (Jónas P. Jónasson)
10:00 - Kynning ráðgjafar fyrir fiskveiðiárið 2025/2026 (Bjarki Þ. Elvarsson). Í kjölfarið er boðið upp á spurningar og svör í sal (ekki frá gestum í fjarfundi).
10:45 – Almennar umræður: t.d nánar um ráðgjöf einstakra tegunda – farið í forsendur, og eftir atvikum nánar í aðrar tegundir, að ósk fundarmanna.
11:00 – Lok fundar
Þáttakendur eru beðnir um að skrá sig hér eigi síðar en á hádegi fimmtudaginn 5. júni 2025.
Tengill fyrir fjarfund verður settur inn hér í fréttina á morgun, þriðjudaginn 3. júní.