Kvaddi eftir 46 ára starf

Deila:

Nú um áramót lét Jóhannes Helgi Sigurðsson, útiverkstjóri hjá Hraðfrystihúsinu Gunnvöru, af störfum eftir 46 ára starfsferil. Jóhannes Helgi vann um helming starfstímans hjá Íshúsfélagi Ísfirðinga hf. og hinn helming starfstímans undir merkjum HG, eftir sameininguna árið 1999. Jóhannes Helgi sinnti ýmsum störfum fyrir félagið og var útiverkstjóri frá árinu 2015, segir á vef HG þar sem honum eru þökkuð vel unnin störf og óskað velfarnaðar í framtíðinni.
Meðfylgjandi mynd var tekin í skötuveislu HG á Þorláksmessu þar Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri, færði Jóhannesi Helga blómvönd í tilefni tímamótanna.

Deila: